Heil og sæl,
Okkur hjá bókaútgáfunni Opnu er mikill heiður að bjóða ykkur í
Ísfirðingafélaginu sérstakt tilboð af bókinni Veislurnar í Neðsta.
Leiðbeinandi verð bókarinnar er
3.990 kr.
Félögum í Ísfirðingafélaginu viljum við bjóða
30% afslátt eða fá
bókina á
2.790 kr.
Byggðasafn Vestfjarða hefur frá árinu 2002 blásið
til árlegrar saltfiskveislu á Ísafirði þar sem hráefnið er sólþurrkaður
þorskur sem breiddur hefur verið út og þurrkaður á fiskreit safnsins.
Leitað var til valinkunnra saltfiskunnenda sem rómaðir eru af afrekum í
eldhúsum heimila sinna og þeir göldruðu fram fjölbreytilegar og
girnilegar uppskriftir á þessu magnaða hráefni sem telja má merkasta
framlag Íslendinga til matargerðarlistarinnar.
Í bókinni Veislurnar í
Neðsta – saltfiskuppskriftir matgæðinga eldhússins heima er að finna
drjúgan hluta þessara veislurétta en jafnframt margvíslegan fróðleik í
máli og fjölmörgum myndum um sögu saltfiskvinnslunnar vestra og þær
framfarir sem þar urðu. Einnig er að finna í bókinni ábendingar um þau
drykkjarföng sem best hæfa þessu lostæti.
Geisladiskurinn Ball í Tjöruhúsinu með tónlist Saltfisksveitar
Villa Valla fylgir bókinni. Þar má finna veisluglauminn í dúnmjúkum
enskum valsi, rúmbu, cha cha cha, sömbu og jive. Söngkonan Jóhanna V.
Þórhallsdóttir stendur í stafni og að baki henni Vilberg Vilbergsson,
Páll Torfi Önundarson, Tómas R. Einarsson og Matthías MD Hemstock.
Tónlist þeirra er kryddið sem ratar í alla réttina.
Bókin er
samstarfsverkefni Byggðasafns Vestfjarða og Bókaútgáfunnar Opnu. Ýmsir
höfundar eiga efni í bókinni, en Jón Sigurpálsson ritstýrði verkinu.
Anna Björnsdóttir hannaði kápu og Prentsmiðjan Oddi annaðist
prentvinnslu.
Sendingarkostnaður á bókinni heim í hús er 290 krónur en
það má sleppa honum með því að heimsækja okkur í Skipholt 50 B.
(gengið er inn að vestanverðu af bílastæði)
Þeir sem vilja panta eintök vinsamlegast sendið tölvupóst á
panta@opna.is eða hringið í síma 578 9080.
Opna bókaútgáfa - Skipholti 50 B - 105 Reykjavík - Sími 578 9080 - www.opna.is