Sólkveðjuhátíð í Skíðaskálanum

Sólkveðjuhátíð Ísfirðingafélagsins í ár verður haldin sunnudaginn 27. september kl. 15.00 í Skíðaskálanum í Hveradölum, (sjá www.skidaskali.is ) sem er sannkallað sæluhús á miðri Hellisheiðinni. Boðið verður upp á kaffi og kökuhlaðborð gegn sanngjörnu verði (almennt verð 1.890 kr. en hálft verð fyrir 6-12 ára og frítt fyrir yngstu börnin). Ræðumaður dagsins verður tilkynntur þegar nær dregur.

Félagsmenn eru hvattir til þess að fjölmenna í Skíðaksálann, njóta þess hitta gamla og góða vini yfir rjúkandi kaffibolla og vænni hnallþórusneið. Þá eru félagar hvattir til þess að bjóða vinum og vandamönnum sem ekki eru nú þegar í félaginu en eiga sömu rætur, að slást í för og njóta dagsins með okkur.
9.9.2009 -


Varðveitum upprunann

Við erum og verðum alltaf ísfirðingar!



 

Skráðu þig á póstlistann



Könnun